myspace ..
01. nóvember 2007 klukkan 13:01
já já við erum dauðar :) ....
en það er hægt að fylgjast með okkur á
www.myspace.com/soffiads
www.myspace.com/aprilsols
og svo krílinu :* á www.januar2008.barnaland.is
Hola!
20. september 2007 klukkan 22:51
jæja Íslandið er búið að vera mjög gott síðan við komum heim þó að það sé kalt og mikil rigning, Við höfum náð að skemmta okkur ekkert smá vel. Seinnustu helgi skelltum við okkur í "stelpuferð" til AK. Hún var frábær. Við fórum auðvitað beint á greifan og skelltum okkur svo á Palla í sjallanum eftir, það var auðvitað frábært og það er pottþétt að þessi ferð verður endurtekin. það var líka geggjað næs að hitta laugalinganna mína aftur og sjá aðeins laugarnar góðu sem er svo sárt saknað.
En á þriðjudaginn átti ég svo afmæli :D orðin voða stór.. Við skelltum okkur öll saman út að borða á fridays og ég fékk frábærar gjafir frá öllum mínum frábæru vinum. Ég bara verð að þakka þeim aftur TAKKK!!!!!
t.d.fékk ég demants hálsmen og eyrnalokka frá mínum heittelskaða, ljósakort með meiru ;) (semsagt tan í pakka) , klút, belti, bol, bangsa og aðra yndislega hluti.
Ég var alveg búin að gleyma hvað það er gaman að eiga afmæli :P
en ég nenni ekki að blaðra meir svo að ég læt þetta gott heita
Vonandi náum við að halda þessari síðu í lífsmarki
komnar heim á klakann ....
06. september 2007 klukkan 12:40

Hæ hæ ..
jæja já þá erum við komnar heim eftir frábæra ferð til tenrife :* við skemmtum okkur ekkert smá vel, enda voru sko teknar stanslausar myndir sem þið getið séð í albúminu hérna til hliðar :)
ferðasagan verður ekki löng í dag en vonandi gefst tími til að segja nánar frá ferðinni seinna en allavegana var gert sko hitt og þetta, við fórum oft oft oft út að borða og það var ekkert verið að spara það hehe:P go-kartið var víst alveg frábært og gátu þau sko kitlað pinnan aðeins :) :Þ við fórum á djet -skí 2 sinnum og er það einstök upplifun að fá að leika sér á svona tæki .. djammið var nú ekki af verri endanum og var sko ill rækilega tekið á því ..:)
Verslunarferðin til santa crus stóð algerlega framúr ,,eða hjá sumum´´ við versluðum á okkur nokkrar! flíkur, skó og annað :D :Þ
við kynntumst æðilsegum íslendingum og gerðum margt með þeim .. alveg ótrúlegt hvað það var mikið að ungu fólki með okkur á hóteli, en þau voru sko ekki minni djammarar en við :) hehe .. Siggeir og Lilja eru eitt par sem við héngum mikið með og söknum þeirra voða núna, en vonandi á maður eftir að sjá þetta fólk aftur .. en já svo var farið í dýragarðinn að skoða ljónin, apana, bleika pardusinn og fleir flott dýr :D
Rennibrautinar í Aqulandi voru prufukeyrðar og voru þær ekki af verri endanum:) ...
Sólbaðið á daginn við söknum þín:* :* já afhverju er maður að búa á þessu skeri þegar maður getur verið í sól og blíðu alla daga .. ég stefni hér með að við FLYTJUM til útlandið ..:Þ en það þýðir ekkert að vera að hangsa best að fara í snjógallann og skella sér út :)
endilega skoðið myndirnar
sæl að sinni:*
....
09. ágúst 2007 klukkan 12:00
Hæ hæ .. :Þ
váhh ég er ekki alveg að kaupa það að við erum að fara út eftir 5 daga. spenningurinn er orðin gífurlegur og það verður æðislegt að komast í sumarfrí :Þ Sunna og Sandra elskurnar eru að fara til Marmaris í fyrramálið, þannig að þær eru mjög líklega að springa úr spenningi :D .. en þessa dagana hjá mér er bara stanslaus vinna, safna penge fyrir tenerife :* ætli maður versli nú ekki smá þarna hehe :P Apríl Sól er nú aldeilis hress og örugglega á nálum núna yfir spenning.. en við vinnum bara, skellum okkur á gay prite á Laugardaginn og höfum það bara gott þangað til að við förum .. Síðasta helgi var sko tekin með trompi, við skemmtum okkur konunglega öll sömul saman í pottinum heima hjá Apisól :D .. þau drukku af sér allt VIT krakkarnir, svoo var það nú bara potturinn mest alla helgina :D .. við skelltum okkur að borða á vegamótum, horfðum á video og slöppuðum af . þinkan hjá sumum!! var frekar mikil .. en bara eins gott fyrir þau að æfa sig hérna heima því þau ætla að vera blind blekuð í 14 DAGA! Sunnudagurinn var æðislegur við fórum í Húsdýragarðinn og hlustuðum á stuðmenn, það var drukkið og skemmt sér, eftir það héldu krakkarnir heim til Aprílar og drukku til 07.00 um morgunninn .. hahah :P
En við bumbugull segjum bara ble ble í bili og það kemur blogg eftir rúmar 2 vikur :D .. þá verðum við tanaðar með fléttur og bling í eyrum :) :Þ
hafið það gott á klakanaum muhahahah:*
Lífið er yndislegt..!
18. júlí 2007 klukkan 16:45
það er svo margt búið að gerast seinnustu daga að ég bara veit ekki hvar á að byrja...Heiðan mín kom t.d um helgina og það var svo gott að sjá hana, gellan búin að losna við teinanna og alles.. Á föstudagskvöldinu var skroppið í húsafell og hent upp tjöldum án endurgjalds og um nóttina skelltum við okkur svo í sund án endurgjalds svo að við þurftum ekki að borga mikið fyrir þá útilegu. Við borguðum þó áfengið okkar sem var drukkið í tilefni að því að hann Eyþór elskan er orðin gamall..21árs TIL HAMINGJU KALLINN MINN!!! á laugardeginum brunuðum við svo í bæinn eftir klukkutíma á krakkatrampólíninu á húsafelli þar sem við leikum á alls oddi(segir maður þetta ekki einhvern veginn svona)og á laugardagskveldinu skelltum við okkur öll á Tapas barinn þar sem er alltaf jafn góður matur og sangrían minnti okkur of mikið á að við erum að fara til Tenerife eftir 27 DAGA!!!! vá þetta er alveg að koma :D svo notaði ég bara sunnudaginn í að slappa af og fara í ræktina eins og alla þessa viku.. Og til að toppa afslöppunina og dekrið keyfti ég mér kort 4vikna kort í snyrtistofunni Englakroppar þar sem ég fer og læt dekra eitthvað við mig í 30mín á dag!! Erum við að tala um lúxus líf? ég er bara að verða eins og mesta egó, ég er farin að öfunda sjálfa mig hehe.. Svo til að toppa þetta allt saman var mamma að segja mér að hún er búin að bóka ferð til Dóminíska lýðveldissins fyrir okkur yfir jólin sem verður æði, hvernig ætli sé að vera í 29 stiga hita yfir jólin?? það kemur í ljós en það sem er enn betra er að mamman hennar Söndru minnar er líka búin að panta ferð þangað og við förum á sama tíma, sama flug, á sömu strönd og allt og ferðin er með öllu innifalið, líka áfengum drykkjum :D hehe
En ég kveð að sinni og þið verðið að afsaka montið í mér :P farðu svo að blogga soffía mín ;)
Bara nokkrir dagar til stefnu..
06. júlí 2007 klukkan 15:47
Pælið í því það eru bara 39 dagar þanngað til við förum til Tenerife.. Þegar ég pæli í því núna þá er það eiginlega bara alltof stutt hehe..
Það ætluðu allir að vera orðnir svo fitt og flottir en ég get nú ekki sagt að maður hafi verið nógu duglegur.. Ég held að málið sé að missa sig í ræktinni næstu 39 daga, vera bara sveitur allan daginn, er þaggi??
Ég og Inga vorum nú að kaupa okkur kort í ræktinni í gær og það var svo dýrt að ég tými ekki annað en að mæta á hverjum degi, ég er svo blönk þessa daganna
ein spurning?
Hvert fara penningarnir mínir?
er einhver ykkar alltaf að taka þá?
þeir hverfa alltaf bara þegar ég er nýbúin að fá útborgað, kannast einhver við þetta?
En allavega ég ætla ekki að hanga lengur fyrir framan tölvuna og tala um að hreyfa mig, ég ætla að skella mér á boot camp æfingu.. heyrumst
ps. ég er í harðri keppni við dauðann.. Ég mun lífga þessa síðu við
kv. Apríl Feitabolla haha
Góðann daginn, ef einhver er hér!!!
02. júlí 2007 klukkan 13:00
Það er voða ólíklegt að einhver sé að lesa þetta þar sem þessi síða er búin að liggja í miklum dvala uppá síðakastið..En ég ætla að gera eina tilraun í viðbót til þess að lífga hana við
Það er svo margt búið að vera að gerast seinnustu daga að það bar kemst ekki allt fyrir í þessu bloggi en um helgina fórum við í lítinn sætan sumarbústað rétt hjá flúðum og það má segja að það hafi verið skrautleg, skemmtileg ferð með of miklu áfengi í fararbroddi. Þar var mikið um trúnó, söng, fækkun fata hjá sumum?? og drykkjuleiki. Fyrsta kvöldið einkenndist af skemmtilegum gítarsöng alveg þanngað til allir strengirnir slitnuðu á dularfullann hátt og eftir það einkenndist ferðin af íslandsskoðunnarferðum og ofdrykkju sem var æðislega gaman... Flestir bjuggu til góðar minningar í þessari ferð, þó grunur liggi á að Sandra muni ekki neitt??
Ég tók því miður engar myndir er ég ætla að reyna að fá einhverjar hjá Eyþóri, sérstaklega myndir af honum og Davíð þar sem þeir keyftu sér nýjar húfur í Eden á leiðinni heim og litu út eins og verstu nördar og orðið á götunni er að þeir ætli ekki að taka þessar húfur niður alla tenerifeferðina sem er btw. bara eftir 43 DAGA!!! Ég get ekki beðið en takk í dag.. Heyrðumst fljótlega
útilega og bíladagar um helgina ..
14. júní 2007 klukkan 20:28

Góðan og blessaðan daginn .. :Þ
jæja já það stittist óðum í að bíladagarnir ógulegu verða haldnir um helgina og við krakkarnir erum að fara að skella okkur í útilegu:)
ég, Sandra og Sunna ætlum að kúra okkur saman í tjaldi hjá bústaðnum Ingu og Eyþórs á meðan að þau verða hjá arninum góða hehe:P ´´abbó,,
en Apríl mín kemur vonandi á Laugardagskvöldinu, hún er nebbla að fara í útskrift hjá systur sinni og kemst því miður ekki fyrr .. og er það einsog heimsendir hjá elskunni, að missa af bíladögum svona 5 árið sitt í röð :s
en voanndi sér hún sér fært að koma á laugardagskveldinu ..
en núna sit ég hérna heima hjá mér á Sauðárkrók og hef það gott, alltaf gott að koma í sveitina hehe:Þ
en það hefur verið mest lítið að frétta af okur Apríl, hún er á fullu í sumarskóla, bood camp held að það sé skrifað svonna :) og ég er bara í rólegheitunum :Þ
en núna er ég farin að fá mér ömmuköku ...
ble ble :*
hawaii party ...:*
19. maí 2007 klukkan 17:52
Hæ hæ ... já þann 16. maí síðastliðinn hélt ég (Sófí) uppá 19. ára afmælið mitt og af því tilefni bauð ég 18 manns til mín í hawaii party, sem heppnaðist mjög vel, það var drukkið, dansað og haft voða voða gaman :) teknar voru fullt fullt af myndum sem verða komnar inn eftir helgi:D
kvöldið var voða skemmtilegt, stelpurnar mættu í hawaii fötum og ég var búin að skreita íbúðina hátt og lágt :D :Þ
En eftir þetta skemtilega kvöld ákvað ég að skella mér á seeb river hook :* hehe jamm gamla góða krókinn til mömmu og pabba og er ég aþr núna og hef það voða gott :) róleg heit :*
kallinn bara að vinna alla helgina og apríl-in mín búin í prófum.. náði öllu með spitt og span kellan og er byrjuð í fisknum hjá elsku pabba sínum .. :) og sumarskólinn fer að byrja hjá henni, hún ætlar ekkert að slappa af í sumar eða ekki fyrr en 14. ágúst þegar við fljúgum til okkar fagra TENERIFE :þ
en jæja best að fara að borða læri hjá múttu gömlu ..
p.z ég er ákveðin í því að ég ætla að fara til afríku eftir svona 5-10 ár og ætleiða eitt lítið kríli, ég horfði á mynd í gær sem opnaði huga minn, hversu!!slæmt þetta fólk hefur það og mig langar að geta hjálpað einu svona kríli .. er einhver leikur í að koma með mér ??
Megi englar guðs vaka yfir þér †
12. maí 2007 klukkan 12:23
† Pétur Kjerúlf

Þann 13. maí 2006 á Grímstöðum á fjöllum, hitti ég hann fyrst á afmælisdaginn minn og Björns Benedikts. Hann og Karl bróðir Björns komu til að fagna 18 og 20 ára afmæli okkar. hann var svo kátur og skemmtilegur strákur, við spjölluðum mikið um íþróttir. þá helst körfubolt. Hann sagði mér frá mörgum sögum af honum og Halla vini mín frá Sauðárkrók. Pétur var frábær strákur, þótt ég fékk ekki mikið að kynnast honum, þá var þetta kvöld einstakt og við skemmtum okkur mjög vel saman.
það var sko dansað, sungið, hlegið og gert margt þetta kvöld sem aldrei verður gleymt. Ég þakka guði fyrir þessa frábæru stund sem ég fékk að eiga með honum:)
Ég man svo vel eftir því, þegar Björn sagði mér frá því að vinur hans og bróðir væru að koma í afmælið okkar, Birni hlakkaði mjög til og var glaður þegar þeir komu :Þ
En því miður var gleðskapurinn mikill og Pétur rölti af stað, í símanum. Ég man eftir því þegar ég kallaði á hann, hann sagðist ætla vera smá stund að tala í símann og kæmi svo aftur.
Blessuð sé minning hans.
Þeir Lauganemar sem voru þar, áttu mjög erfitt eftir þetta. En eins og hjá öllum öðrum verður hann ætíð í brjósti okkar allra.
minningarsíða péturs er, http://www.blog.central.ispkjerulf
Soffía Dröfn Snæbjörnsdóttir -

Þann 13. maí 2006 á Grímstöðum á fjöllum, hitti ég hann fyrst á afmælisdaginn minn og Björns Benedikts. Hann og Karl bróðir Björns komu til að fagna 18 og 20 ára afmæli okkar. hann var svo kátur og skemmtilegur strákur, við spjölluðum mikið um íþróttir. þá helst körfubolt. Hann sagði mér frá mörgum sögum af honum og Halla vini mín frá Sauðárkrók. Pétur var frábær strákur, þótt ég fékk ekki mikið að kynnast honum, þá var þetta kvöld einstakt og við skemmtum okkur mjög vel saman.
það var sko dansað, sungið, hlegið og gert margt þetta kvöld sem aldrei verður gleymt. Ég þakka guði fyrir þessa frábæru stund sem ég fékk að eiga með honum:)
Ég man svo vel eftir því, þegar Björn sagði mér frá því að vinur hans og bróðir væru að koma í afmælið okkar, Birni hlakkaði mjög til og var glaður þegar þeir komu :Þ
En því miður var gleðskapurinn mikill og Pétur rölti af stað, í símanum. Ég man eftir því þegar ég kallaði á hann, hann sagðist ætla vera smá stund að tala í símann og kæmi svo aftur.
Blessuð sé minning hans.
Þeir Lauganemar sem voru þar, áttu mjög erfitt eftir þetta. En eins og hjá öllum öðrum verður hann ætíð í brjósti okkar allra.
minningarsíða péturs er, http://www.blog.central.ispkjerulf
Soffía Dröfn Snæbjörnsdóttir -

